Jæja, Tran nefndi Snowreap (KvK) sem server og ég er sammála honum í því að það sé besti kosturinn (sérstaklega þar sem flestir hérna koma úr DAoC).
Spurning bara ef fólk ætlar að halda sig saman og svona hvort það sé ekki tími til að fólk fari að taka ákvarðanir varðandi hvaða Kingdom við ættum að fylgja.
Sjálfur er ég nokkuð hlutlaus í augnablikinu, hef ekki kynnt mér Kingdomin nægilega vel til að styðja eitt eða annað.
En hvað segir fólkið sem er game í að halda íslendingunum saman? Hvaða Kingdom ættum við að velja?