Haha nú verður pottþétt drullað yfir mig en ég ætla þó að segja þetta…..mín skoðun á svona “TILEINKUM ÞETTA SATAN!!!” og svona drasl, þetta er svo bjánalegt þegar þetta er gert. Persónulega finnst mér ekkert kjánalegra en 25 ára gaurar í rokkbandi sem að klæða sig í gadda, leður, járn og alls kyns rusl sem ég myndi henda á ruslahaugana og halda á svínshausum og fórna öllum andskotanum bara til satans eða eitthvað.
En tónlistin er allt annað mál, tónlistin getur verið mjög góð, bara hitt sem mér finnst svo bjánalegt, finnst nákvæmlega ekkert kúl við það.
ATH!! Bara mín skoðun, ekki skítkast á eitthvað.