Varg stakk hann 4 sinnum að hans sögn, en í réttinum kom fram að Euro hefði verið stunginn 23 sinnum. Varg sagði að ástæðan fyrir öllum hinum 19 sárunum var að hann hefði dottið á glerborð í stofunni sinni. Varg var bara með vasahníf á sér, skildi hinn stóra hnífinn sinn eftir úti í bíl, sem gefur ágæta sönnun fyrir því að hann ætlaði sér ekki að drepa hann. En sem sagt, Varg stakk hann 4 sinnum og drap hann með því að stinga hnífnum í ennið á honum. Það var annað hvort að stinga hann í ennið til þess að drepa hann, eða plokka hjartað úr honum með hnífnum sem hefði verið muuun erfiðara. Varg sagði að það hefði verið mun auðveldara að berja hann til bana í stað þess að vera með þennan vasahníf.