ég get nú ekki sagt að hann hafi verið uppáhaldsgítarleikarinn minn, hvorki fyrir eða eftir að hann dó.
en ég er mikill pantera aðdáandi og það breyttist ekki á neinn hátt eftir að dime dó, beindi dýrkun minni ekkert einungis að honum fyrir né eftir.
Ég var í hljómsveit sem var að spila svona heavy metal shit, og einn daginn kom ég með pantera disk og var að stinga uppá því að við mundum taka lög eftir þá og sýndi hinum í hljómsveitini einhver lög, þeir sögðu að pantera sökkuðu og væru ömulegir og ekki séns að við færum að taka eitthvað eftir þá.
…í dag er pantera uppáhaldshljómsveit allra þáverandi hljómsveitarmeðlimanna minna, allir búnir að fá sér Dimebag boli og svona razorblade hálsmen, og í stuttu máli dýrka Dimebag og pantera.
þetta finnst mér vera svo mikil hræsni að ég treysti mér ekki til að finna lýsingarorð sem gætu lýst því.
ég hætti svo í hljómsveitinni, og í dag eru þeir í dimebag bolunum sínum að spila pantera lög hressir og kátir með nýja trendið sitt.
Bulletproof & bound for glory.