Mér finnst þetta of trebly-sounding mix eitthvað, voða lítið af bass frequency eða bassi yfir höfuð. Kannski hægt að skella skuldinni að einhverju leyti að slöku tölvuhátölurunum mínum, en ég held að mun meiri bassi og low end frequency myndi gefa þessu mikið kick.
Ritualistic Murder - Mörg riffin eru svöl og ég fíla seinni hlutann af laginu frekar mikið. Góður kraftur í því lagi.
Hypothermia - í þessu lagi eru gítararnir alltof háværir fyrir minn smekk, ef þeir væru settir soldið til baka og meiri bassatíðni (og bassatromma) kæmi inn væri þetta djöfull heavy. Heyrist eiginlega of lítið í söngvaranum, en sem lag er þetta alls ekki slæmt.
Hanged and Charred og Delusional Reality virkuðu ekki, svo að ég sleppti þeim.