allar upplýsingar sem þig vantar eru komnar á harðkjarna núna eða semsagt:
Þann 5.april munu verða geðveikir tónleikar í gamla sjónvarpshúsinu ( laugarvegur 176 ), verða þeir frá kl 7-12. Miðar fást í Hljómalind ( laugarveg 21 ) á 1000 kr, en fólk verður að borga cash, því það verður ekki tekið við kortum. Það er takmarkað magn á miðum þess vegna er það “fyrstir koma, fyrstir fá”. Hljómsveitirnar sem spila verða Noize, d.u.s.t, I adapt, Citizen joe, Snafu, Elixir; Andlát og Changer.( 16 ára aldurstakmark )