Hættu að þröngva þinni tónlist upp á fólk.
Djöfull er það farið að fara í taugarnar á mér þegar fólk segir að Dubstep sé geðveikt.
Ég virði skoðanir annarra á tónlist og allt það, og sum raftónlist getur verið alveg ágæt, jafnvel góð. EN dubstep er einfaldlega ekki í þeim flokki.
Að minnsta kosti hef ég ekki heyrt neitt hingað til sem fær mig til að skipta um skoðun á því, og hef satt að segja ekki nokkurn áhuga á því. Mest dubstep sem ég hef heyrt hljómar einna helst eins og remix af biluðum lyfturafal, ljósaperu sem er um það bil að springa og lélegum barnahljómborðssándum.
Ég veit að það er alveg óþarfi fyrir mig að vera að pósta einhverri ritgerð of a comment á þetta, ég gæti alveg sleppt því að skoða þetta og blablabla.
EN þetta er einfaldlega ekki rétt áhugamál til að setja þetta inná, /Raftónlist er það auðvitað.