Heads up folkens….
Undirbúningur er kominn á fullt fyrir hátíðina í ár, en hún mun verða með glæsilegasta móti, eins og venjan er. Engar hljómsveitir eru staðfestar enn þar sem enn er verið að punkta niður nöfn meðal hreint ótrúlegs úrvals af frábærri þungarokkstónlist sem Ísland hefur upp á að bjóða um þessar mundir. Kreppan nær sem betur fer ekki til sköpunargleði hljómsveita hér á landi. Fylgist með síðum okkar hér á MySpace og á Facebook til að fá fréttir, en þær munu koma í stríðum straumi fram að hátíð!
Félagi okkar og Íslandsvinurinn Antonio Ruiz / Ominous hefur tekið að sér að sjá um alla grafík og myndefni fyrir hátíðina í ár, en fyrsti “teaserinn” er kominn upp á síður okkar. Þið finnið MySpace síðu hans efsta í vinalista okkar. SALUD CABRON!!
Meira síðar
ANDKRISTNIHÁTÍÐ @ MYSPACE
Þið sem eruð á Facebook getið svo fundið grúppuna undir nafni Andkristnihátíð!
Shehamforash!!