METALL!!! … líklega svartasti útvarpsþáttur í heimi
Þungarokksþátturinn Metall!!! hóf göngu sína haustið 2007 á Rás 2 og er sendur út á fimmtudagskvöldum eftir tíu fréttir. Í þáttunum hefur litaspjaldi hins þunga rokks verið þeytt til hægri og vinstri, skalinn hefur verið allt frá stuðvænu partírokki yfir í sjúklegt svartþungarokk og duglega er kryddað með safaríkum fróðleiksmolum. Rík áhersla hefur verið á nýtt íslenskt þungarokk auk þess sem Metalhaus mánaðarins hefur kíkt reglulega í heimsókn til skrafs og ráðagerða.
Frekari upplýsingar veitir umsjónarmaður, Arnar Eggert Thoroddsen, í síma 822-7170 eða í gegnum netfangið arnareggert@gmail.com.