Veit reyndar ekki alveg hvað er á dagskrá hjá okkur, líklegast spilum við ekkert í sumar, ekki nema mikil breyting verði á. Stefnan er hinsvegar að semja fleyri lög og klára þau sem eru í vinnslu núna.
Takk, fyrst og fremst stóð okkur það aldrei til boða, en sóttumst heldur ekki eftir því. Ástæðan er sú að tímasetningin er slæm fyrir okkur. Það hefði verið gaman að vera með og vonandi spilum við þar að ári.
Já við vorum í bullandi vandræðum með nafnið, alltaf allir ósammála um allt, en Darknote var lýðræðislega valið og held ég fyrsta nafnið sem allir voru sammála um. Þú hefðir átt að heyra hinar hugmyndirnar ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..