Mér finnst þetta bara alveg bráðskemmtileg leik-frammistaða hjá drengnum. Býr yfir alveg fínum leikrænum hæfileikum, eða einhverju sem gæti orðið slíkt. Fer þarna með alllangan leikþátt án þess að fipast. Svo er þetta smá ádeila á hinn týpiska metalhaus, en ég man nú sjálfur eftir því að hafa farið á Wacken í fyrsta skiptið 1998, þá 23 ára, og verið eini gaurinn á svæðinu sem ekki var íklæddur einhverjum týpiskum metal-klæðnaði eða með eitthvað ákveðið metal look.
Resting Mind concerts