Hafliði minn.
Ég veit ekki alveg hvort þú gerir þér grein fyrir hvað þú ert að gera með svona skrifum.
Mér er alveg sama hvort þú fílir okkur í Hostile eða ekki en hinsvegar ertu að blanda einstaklingum inn í þetta sem hafa ekkert með hlutina að gera.
Villi er góður vinur okkar allra og voru engin leiðindi vegna brotthvarfs hans úr Hostile. Hann djammar oft með okkur og hefur verið rosalega nice við mig og sýnt mér mikinn stuðning sem arftaki hans sem er engan veginn auðvelt hlutverk enda er Villi frábær gítarleikari. Polymental strákarnir (að undanskildum Kjartani bróður þínum sem við þekkjum lítið) eru góðir vinir okkar til margra ára og hafa þeir oft stungið upp á að fyrra bragði að Hostile og Polymental taki saman gigg sem er núna í bígerð. Auk þess er ég umboðsmaður Momentum sem er staða sem þeir báðu mig um að taka að mér.
Eftir þessi skrif þín á Huga þar sem þú ert að drulla yfir okkur og blanda Villa inn í málið varð uppi mikill misskilingur hjá öllum að það væru allt í einu komin upp einhver illindi en það var að sjálfsögðu leiðrétt og voru menn mjög hneykslaðir á þessum skrifum hjá þér.
Ég ætla alls ekki að fara að rífast við þig hérna á netinu en ég er bara að biðja þig um að vera ekki að búa til einhver leiðindi af því þú telur að hlutirnir séu svona eða hinsegin og vera að drulla yfir okkur af því þú heldur að það hafi verið gert eitthvað á hlut Villa sem er kolrangt. Verum vinir mmmkey…