Ég ákvað ekki að þú værir óþroskaður, þú sýndir það bara sjálfur. Hvað gerir þig óþroskaðan? Það fyrsta sem ég rak augun í er að þú kannt ekki að slá á lyklaborð, en það getur komið fyrir á bestu bæjum þegar mönnum er mikið niðri fyrir. Svo er málnotkun þín líka oft alveg útúr kú, sem bendir til þess að þú eigir ennþá eftir að klára síðustu bekki grunnskóla. Svo gætiru líka bara verið svona mikill rebel og hætt þegar þú varst búinn með sjöunda bekk, hvað veit ég.
En helsta ástæðan fyrir því að ég myndi halda að þú værir óþroskaður 14 ára stráklingur er sú staðreynd að þú lifir fyrir að stofna til illynda hér á Huga og reynir að breyta þessu ágæta áhugamálinu í einhvern sandkassaslag á leikskóla. Ef að þú værir þroskaður myndiru stofna til rökræðna, en þú stofnar til rifrilda, og í ofanálag kryddaru það með persónulegum móðgunum og nafnaköllum. Auðvitað á ekki að fóðra tröll eins og þig en því miður verða menn pirraðir og þá vindur þessi vitleysa uppá sig. Vonandi að það sé ekki eitthvað sem muni halda áfram.
Að lokum, ég álít mig ekki “mega þroskaðan”, en ég hef hins vegar alltaf reynt að haga mér eftir aldri. Kannski að þú ættir að íhuga slíkt hið sama?
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _