Farið hér til að sjá þetta allt!
http://www.taflan.org/viewtopic.php?t=31433
Til að segja ykkur frá því sem á daga þeirra dreif í stuttu máli hér á landi þá dvöldum við í Hveragerði í húsi foreldra minna. Það heitir Axelshús og var áður rekið sem gistiheimili þannig að þar var allt til alls fyrir þá. Seint hefði ég trúað því að njóta mætti dvalar í Hveragerði þar sem þetta er hrikalegt skítapleis en síðan eldrarnir keyptu þetta hús þá hef ég ávallt notið þess að vera þar í kyrrðinni. Sakis er að spá í húsnæðisverði þarna og hugsanlega verður næsta Rotting Christ plata samin á Íslandi. Þeir heimsóttu svo nokkra vel valda staði hérna og nutu dvalarinnar það vel að þeir koma aftur að ári liðnu, hvort sem það verður til að spila eða bara að komast í frí kemur í ljós.