Þessi vefur gengur út á væl.
Þessi vefur gengur bara útá væl ef að notendurnir eru með endalaust væl, skítakomment og upphrópanir sem ég hef ekki heyrt síðan ég var í 6. bekk í grunnskóla. Það er alveg fáránlegt hvað þroskastigið getur hrapað hratt hérna og er þessi þráður gott dæmi um það. Menn kalla hvorn annan þroskaheft fífl, kynvillinga og þaðan af verra og finnst þeir jafnvel vera örlítið svalari fyrir vikið. Svalir af því að þeir náðu að drulla yfir einhvern á netinu á eins ómálefnalegan hátt og þeir mögulega gátu.
Mér finnst líka svo skrýtið hverjir láta þessa vitleysu útúr sér og hvernig menn sem eru alveg sæmilega þroskaðir og með töluvert á milli eyrnanna sökkva niðrí þetta forarsvað og taka þátt í vitleysunni í stað þess að vera menn og meiri og láta kyrrt liggja, eða sleppa a.m.k. barnaskapnum.
Þessi vefur gengur bara útá væl ef að þið, notendur, eruð með væl. Ég verð að segja fyrir mitt leyti að ég væri alveg til í að sjá hann ganga útá eitthvað annað en helvítis væl og endalausan dónaskap og skítköst.