Fyrst og fremst alhæfiru og segir ‘þið ofurhörðu gotar drullið yfir þær’ þarna kallaru óákveðin hóp fólks ‘gota’ og segir að þeir drulli yfir allt. Ókei þetta var kannski ekki besta dæmið en samt.
Annað þú sagðir áður;
Það eru margir sem fíla alveg metal tónlist á borð við Metallica, en ekki Death Killing Zombie Eating Skull Blood Core Gore Black Beast Hail Satan Metal.
Þarna er gott dæmi um hvernig hugarfar þú berð til þyngri málma og hvernig þú dæmir þá eftir þinni litlu reynslu á þeirri tónlist.
Þú virðist þurfa að ná betri tökum á orðinu ‘fordómar’, tilvitnunin hér fyrir ofan er dæmi um fordóma.
Eru það fordómarnir að kalla Trivum homma?
Já auðvitað eru þetta fordómar en ég kallaði þá aldrei homma sjálfur og sagði aldrei að þetta væru ekki fordómar.
og svo sagðir þú
en þið ofurhörðu gotar drullið yfir þær.
Þú gerir þér greinilega ekki grein fyrir því að það eru ekkert allir gotar þó þeir seu ofurharðir og hati Trivium.
Sagði ég að fólk hlustaði á ‘þungan málm’ til að vera töff eða harðir?
Nei þú gerðir það ekki og ég sagði heldur aldrei að þú gerðir það.
því að menn eins og þú eru svo ógeðslega töff og verðið að sýna okkur það með skítköstum.
Þarna ertu svosem að gefa það í skyn að þeir séu svo ofurharðir að drulla yfir Trivium því þeir eru ekki nógu góðir fyrir þá. Annars var það Dagurgisla sem sagði það, afsakaðu.
Ok, svo smá komment, tilvitnanirnar þínar og textinn undir áttu yfirleitt ekki saman. Auk þess eru rökin þín arfaslök.
Svo talarðu um að ég sé að dæma alla hérna útaf nokkrum kommentum á eina mynd. Í fyrsta lagi er ég ekki að dæma alla, í öðru lagi verðum við einfaldlega að horfast í augu við það að skítköst, leiðindi og fólk að passa upp á kúlið á kostnað annarra er hvergi jafn algengt og á akkúrat þessu annars ágæta áhugamáli.
Í fyrsta lagi get ég ekki séð að rök mín séu neitt slök. Ég svaraði Tilvitnunum þínum á fullkominn hátt þó að ég hefði minnst á eitthvað annað í leiðinni.
Ég talaði heldur aldrei um að þú værir að dæma alla, bara þá sem þú kallar ofurhörðu gotana.
Svo segiru að við verðum að horfast í augu við skítaköstin!? Það er akkúrat það sem ég er að segja þér þegar þú sendir inn linkin af myndinni með Trivium þar sem allir eru með skítaköst.
Maður verður að sjálfsögðu að horfast í augu við þau en ekki byrja að væla og vilja fá sérstakt áhugamál útaf fyrir sig til að geta sent inn efni með léttmálm því þá þarf maður ekki að horfast í augu við skítaköst.
Ef manni langar til að stunda þetta áhugamál geturu ekki farið að væla útaf því fólki líka illa við hljómsveit sem þú heldur uppá. Þú verður bara að horfast í augu við skítaköstin og ofurhörðu gotana sem eru svo kúl.
Svo ef þú ætlar að svara mér aftur þá bið ég þig um að svara öllu sem ég segi eins og ég geri þegar ég svara þér. Ekki bara svara sérstökum tilvitnunum eða einu atriði sem ég hef ekki orðað vel.