are they done fighting yet? á svona stundu hata ég íslenska tungu… þegar menn rífast útaf málfræðinni sem í þessu tilfelli er að ég held rétt hjá liðinu sem er gegn Gjallarhorninu… ég hef oft ósjálfrátt sagt er þótt ég hafi verið að meina mín skoðun, og margir gera þetta, en það er búin að koma fram viðurkenning að hann var að gefa smá áætlað skot frá sér, sem gerir það líklegra að hann hafi viljað alhæfa til að skapa smá fjaðrafok… æj, sama hvað þá á svona vesen ekki við metalhausa, ég vil samt lýsa því yfir að ef þið böstið mig við að taka ekki fram MÉR FINNST, þá er það samt meiningin, því ég tjái alltaf skoðun, ég alhæfi hinsvegar með að taka fram að ég alhæfi hlutinn. annað eru skoðanir mínar og að baki þeim liggja viss rök, viss þekking og viss trú, innblásið af vissum kostulegum persónuleika. en leggið nú stríðsaxirnar á hilluna og leyfið róttæklinginum að eiga sig, en hinsvegar megiði mín vegna álíta hann fífl, get ekkert mælt gegn því að fólk hafi álit, en ég get mælt til friðar milli metalhausa og stríðs gagnhvart þeim sem vilja útrýma því sem við stöndum fyrir :-D og það mun ég alltaf gera, en þó innan lagarammans og á drengilegann hátt… með því að sameina, stækka og styrkja metalið, alls staðar… warriors (of metal) of the world united!!!