Maður spyr sig, það er ekki sami stemmari fyrir megadeth eins og var fyrir tveimur árum þó að sumir hugarar láti í ljós aðdáun sína á Mustaine og Megadeth i undirskriftina, no offence.
En í alvöru talað þá væri það lítill möguleiki fjárhagslega séð að fá þessar gömlu kempur til landsins nema að einhver myndi styrkja komuna verulega. Það er líka margt annað spennandi í boði sem myndi gefa betri útkomu fjárhagslega sem tónlistaráhugamenn myndu sækjast í.
En ég get þó sagt þér það að ég myndi hiklaust fara aftur og vonandi munu þeir koma aftur, jafnvel þá með öðrum góðum böndum sem væru að túra með þeim.
En eins og staðan er í dag þá skulum við vera þakklát fyrir að fá meistara Cannibal Corpse til landssins, reyndar gæti verið annar auka glaðningur síðsumars en ég læt þetta nægja í bili.