Anti-Government textar eru alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér ef þeir eru vel samdir, og allir textar sem snúast um að láta ekki stjórna því hver þú ert hvort heldur sem er í gegnum tísku, stjórnmál eða kapítalisma, heldur að halda alltaf í einstaklingseðlið. Slíkt er í miklu uppáhaldi því þetta tengist svo sterkt mínum persónulegu skoðunum.
Sem dæmi um slíkan texta er textinn við lagið As The Palaces Burn, en það lag er búið að vera á constant repeat hjá mér í viku núna, glöggir menn sjá ða ég er með textabút úr því lagi í undirskrift hjá mér.
Hvet þig til að kynna þér textann ef þú þekkir hann ekki og hlustaðu á lagið í leiðinni. Textinn er hér:
http://www.sing365.com/music/lyric.nsf/As-The-Palaces-Burn-lyrics-Lamb-Of-God/62EB80568485529448256D25000406A1