Hann fór tíu mínútum seinna og ég vissi það vel og vildi fremur bíða inni heldur en að fara út, með hálsbólgu og kvef.
Bætt við 26. nóvember 2006 - 03:43
Ætlaði annars að vera lengur og ná því sem eftir var eftir að hafa jafnað mig (ef eitthvað var, veit ekki hvort þetta var búið, hefði komist að því) og t.a.m. athuga hvort ég gæti fengið far með vini mínum og vinkonu hans eitthvert, eða taka annars strætó, þennan sem fór eftir tíu mínútur eða þá fjörtíu mínútur.
Mér var hinsvegar vísað út og í leiðinni bent á miða sem á stóð “Áfengi er ekki leyft”. Ég sagði að ég væri veikur en ekki ölvaður, en var ekki trúað. Hefði mögulega mátt athuga hvort eeeinhver áfengislykt væri af manni í staðinn fyrir að kasta manni bara út?