Andspyrna heldur öfgametalkvöld föstudaginn 13. Október.
Fram koma:
FORGARÐUR HELVÍTIS
SEVERED CROTCH
SVARTIDAUÐI
REVOLTER
Þessir öfgatónleikar fara fram í biljardherbergi TÞM. Þar höfum við truflast saman áður og líkaði vel.
Tími: 21-23.
Aldurstakmark er af okkar hálfu ekki neitt. Við erum hafnir yfir lög manna.
Við biðjum um max 500 kr við innganginn (en ef einhver sem langar virkilega að koma á bara eitthvað minna eða ekki neitt þá erum við mjúkir í samningaviðræðum - við viljum ekki að fólk sitjii heima og missi af þessu vegna blankheita).
Metalhausar þekkja sitt stöff á line-öppinu nema kannski Revolter en þeir eru Black Metal band sem mun þarna skemmta skrattanum opinberlega í fyrsta sinn. Þeir eiga myspace síðu.
Góða skemmtun
http://img.photobucket.com/albums/v412/nox_horde/ttttaaa.jpg
Bætt við 10. október 2006 - 11:22
Þetta er það besta sem gæti hugsanlega verið í boði á köldu og dimmu föstudags kvöldi!
Severed Crotch