Ég var að spila með Winter, eða “spila”. Var fenginn sem annar gítarleikarinn hjá þeim fyrir tónleikana, og það var bara tekin ein æfing fyrir. Eina lagið sem ég kunni var það sem ég samdi, en það var svo illa æft hjá okkur að við þurftum að hætta við það eftir svona 3 stopp :P. Þá gerðist ég áhorfandi. En great Vomit voru fínir, heyrði lítið í Stálregni og ekkert í Blood Feud því við þurftum að fara snemma.