Í framhaldi af þessum sniðuga kork hérna fyrir neðann sem eitthver sniðugur gaur gerði ætla ég að spyrja; Er einhver Hugari úr MH sem er jafnframt Metalhaus?
Ég myndi jafnframt halda, talandi um menntaskóla að það sé mest um metalhausa í MH… Sjálfur er ég í borgó, við erum fáir þar, er ég hef tekið eftir allavega..
Uss.. ég er nýnemi í Borgó.. ég og félagi minn reynum nú að representa með Opeth bolum og svona :) Annars er dálítið af fólki þarna sem hlusta á metal, held meirasegja að söngvarinn í Severed Crotch sé þarna.
Ég er á svona 4 ári.. held ég hafi séð annaðhvorn ykkar, annar ykkar kannski ljóshærður? Ég hef reyndar verið síðustu daga í bol sem á stendur: Satan wants you to read my shirt! sem ég keypti úti, ehhe
ég er alveg viss. ég er ekki í borgó þannig að ég hef aldrei séð hann þar, en vinir mínir eru þar og þeir þekkja hann (ekki vel samt, hann er með vini þeirra í hljómsveit) og segja að hann sé í borgó
Ég held alveg örugglega að ég sé einn af þeim fáu sem geti kallað sig metalhausa og geng í Versló, samt eru þeir nokkrir þó þeir gangi ekki endilega í fötum sem auglýsa það.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..