Besta vinkona mín er alveg ógurlega fyndin stundum og var í eitthverju kasti, og endaði á að segja “mér finnast kúlupennar eggjandi” með tilheyrandi svip.
Síðar héldum við vinkonurnar óvænt afmæli fyrir hana og þá fór ég í merkiprent og lét prenta þetta bleikum stöfum á svartan bol, hvorug okkar þolir bleikt - bolurinn sló í gegn.
Síðan þá hefur þetta bara verið ódauðleg setning.