ég man þegar ég heyrði fyrst frá þeim.. þá var ég í bíl á þjóðveginum með vinkonu minni og kærastanum hennar sem vissi allt um þessa hljómsveit og sagði að söngvarinn hafi verið a´geðveikrahæli og allur andskotinn.. og svo setti hann á eitthvað lag, það byrjaði frekar rólega og svo alltíeinu out of the blue kom þetta skaðræðisöskur eins og gaurinn hafi misst alla útlimi og fengið salt og tabasco sósu í sárin og hafi öskrað af öllu sínu afli úr sársöka, klukkan var svona um 12 leitið og það var dimmt (enda var vetur) og ég varð bara virkilega hræddur og hélt að söngvarinn myndi stökkva útúr hátölurunum og borða mig..eða í minnsta lagi drekka allt blóðið úr mér með röri og borða heilann úr mér með skeið.. ég fíla oft á tíðum metal mjög vel.. en þetta tók mig algjörlega á taugum og ég hef ekki enn náð mér eftir þetta..
semsagt.. ég er ekki að digga þetta band neitt mega ;)
“enginn veit hvað hann hefur átt fyrr en það er glatað