ég hef ekki heyrt alla Reise Reise eða Rosenrot, en það sem ég hef heyrt af þeim er ekkert sérstakt.
Sama gildir um Mutter :(
Hef aldrei fílað hann sérstaklega í heildina, Links 234, Sonne, Mutter og Nebel eru einu lögin sem ég virkilega fíla, hitt er of mikið … Ekki-Rammstein ef þið skiljið.
Fyrstu 2 plötutnar eru margfalt betri að mínu mati. Þyngri, agressífari, hrárri og ögrandi og mikið minna af hljómborði og svona tölvu dæmi sem mér finnst hafa eyðilagt hina diskana.
Ég kynntist Rammstein ('98 eða '99)gegnum Sehnsucht og síðar Herzeleid, og það er sú Rammstein sem ég vil ennþá heyra í, eins og þeir voru þá. Svo eiginlega missti ég áhugann við Mutter, finnst þeir hafa breyst einum of mikið.
Herzeleid er bestur.