Mér er farið að leiðast þessi neikvæða umræða um Goth hérna á metal. Goth er bara lífstíll og á alveg jafn mikin rétt á sér og hver annar.

Auðvitað eru til Mainstream 13 ára manson Goth krakkar sem gefa nafninu óorð, en svo eru líka til meira dedicated Goth fólk sem virkilega finnur skilning og lýður vel í þessum lífstíl.
Rétt eins og það eru mainstream Numetal bönd og aðdáendur og svo eru aðeins dýpra þenkjandi málmbönd og aðrdáendur, nema að þegar það kemur að Gothinu, þá eru það aðeins það yfirborðkendasta sem fær einhverja athygli hérna (99% neikvæða), sem er als ekki sanngjarnt, ekki frekar en fólk sem er ekkert inn í metal notar bönd líkt og Linkin Park til að stimpla og rakka niður alla metal aðdáendur.

Goth getur rakið sig alla leið aftur til Gota og geta réttlætanlega tekið mikið stolt úr því, enda merkur þjóðflokkur þar á ferð.
Goth manneskjur í dag, eru í raun aðeins þær sem að sjá fegurð úr myrkri. Eru í miklum contact við sínu tilfiningalegu hlið auk þess að hafa áhuga á myrku hliðum menningar og málefna, svosem metals.

Goth á sér sterkar rætur í metal sama hvort fólk er tilbúið að viðurkenna það.

Doom, Drone, Black og death metall er uppfullur af Gothi og Goth áhrifum, sama þótt að ákveðnir mainstream hópar hafa komið óorði á stefnuna, þá er þessum áhrifum ekki að leyna.

Við ættum virkilega að reyna að embrace´a Goth umræðunni hérna og snúa henni í jákvæðari áttir með maske aðeins metnaðarfyllri Goth hljómsveitum heldur en Him og evanescence.

Crestfallen