Ég hlusta svakalega mikið á Death og Black Metal en það er svakalega erfitt að segja um hver er þyngsta, þær eru svo margar þungar á mismunandi hátt einhvernmegin og síðan lít ég ekkert endilega á þær sem þungar. En ætli ég segi ekki Silencer, veit ekki með hvort þeir séu þyngsta hljómsveitin sem ég hlusta á.. Það er bara málið í fyrstu, svona 2 skiptin sem ég hlustaði á lagið: Death, pierce me fékk ég hroll og gæsahúð í leið og ég heyrði sönginn og ég fucking elskaði það.. Fannst þeir ekki góðir þá fyrst en síðan byrjaði ég bara að fíla þá, þá hvarf alveg hrollurinn og gæsahúðin, hehe..