Já bara verst að þeir tóku ekki aukasoloið í she wolf eins of var á rude awakenings. Já þessi þulur þarna er þreytandi. Einhver tímann hlustaði ég á svona tónleikaútsendingu frá suður ameríku og þá var þetta líka svona. Kannski er þetta venja þar að vera með þul sem segir fólki reglulega hvað það er að hlusta á.
haha.. ég hélt þetta voru bara pepsi auglýsingar settir inní hehe :P fyrst í byrjunina á Die Dead Enough þá var ég bara “hver í andskotanum er að syngja?” hljómaði ekkert eins og Dave.. en það heyrist núna ;)
þetta er svona þegar tónleikar eru í útvarpi. Ég á Iron Maiden bootleg og í miðjum tónleikunum kemur einhver kona og segir JOOO Nu er vi bara att borja, vi skal hojra til en og half tíme af Iron Maiden
Já þetta er skrítið að láta þul vera að tala þarna og svona reglulega. Ég er að lesa á megadeth spjallinu þar sem fólk er að spjalla um þetta og komnar 11 blaðsíður.
já shit þegar þau fóru að raula með She-wolf!! það var geggjað :D en djöfull brá mér þegar það skyndilega fór að buffera ég hélt þetta hefði bara dottið niður haha
Já þetta hefur dottið þrisvar út hjá mér og þá flýti ég mér að ýta á refresh. Vonandi bara helst þetta inni þegar hann lætur vita hvað hann gerir með nafnið. Jæja þulurinn virðist vera í kaffipásu haha.
Já mér sýndist umræðan á megadeth spjallinu fyrr í kvöld vera þannig að fólk væri öruggt um að bæði video og hljóðútsending væru felldar niður. Það var bara tilviljun að ég hitta á hljóðútsendinguna enda var ég búinn að afskrifa þetta allt saman. Vill einhver senda þennan þul í frí og það strax.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..