Ég er að fara til Danmerkur í næstu viku. Ég ætla að athuga hvort að þið vitið um einhverja búðir á Strikinu í Köben eða í bænum Hilleröd sem selur metalstöff, boli og svoleiðis. Endilega svara sem fyrst.
Það er raftækjabúð á strikinu sem heitir FONA. Ein hæð í búðinni er tileinkuð geisladiskum og þar er andskoti gott metal horn. Ég eiddi eitthvað í kringum 10.000 ISK þarna. BTW: FONA er lokuð á sunnudögum.
FONA er góð og ég mæli líka með búð sem heitir GUF ef þú getur fundið hana. Svo er búð sem heitir Sex Beat Records og er við Studiestræde 18, það er stutt frá strikinu og þeir eru með fullt af kúl stöffi sem þú finnur ekki annars staðar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..