Ef þér finnst það, prófaðu að hlusta á nýjasta diskinn þeirra, t.d. Circle og Vermillion Pt. 2 og reyndu að segja að þetta sé bara læti og öskur. Sjálfur fannst mér annar diskurinn þeirra mjög góður, svo kom Iowa sem var hryllingur og svo nýjasti sem kom manni skemmtilega á óvart.
Og varðandi sviðsframkomu þeirra er hún sérstök. Hún nær mjög til áhorfendanna, var á tónleikum með þeim þar sem áhorfendurnir voru á aldrinum 5 til 60 og stemningin var helvíti góð.