Breska þungarokksveitin Iron Maiden er ein sú þekktasta og vinsælasta í heiminum og hefur verið það í áraraðir. Hljómsveitin á sér langa sögu að baki og hér kemur smá grein um hana.
Hljómsveitin var stofnuð af bassaleikaranum Steve Harris í London árið 1976, þá var Steve aðeins 19 ára og var einnig bráðefnilegur knattspyrnumaður þar sem hann spilaði með unglingaliði West Ham í austurhluta London. Steve fékk sinn fyrsta bassa 15 ára gamall, Fender Telecaster fyrir 40 pund, sem eru um 5000 íslenskar krónur, en hefur reyndar verið meira á þessum tíma.
Hann spilaði áður í böndum eins og Gypsy’s Kiss og Smiler en þau bönd lifðu ekki lengi. Gypsy’s Kiss spilaði í fyrsta sinn og entist í sex tónleika. Þá stofnaði hann Smiler sem gekk ekki upp. Svo hann ákvað að stofna nýtt band, Iron Maiden. Nafn sveitarinnar, Iron Maiden, eða Járnfrúin á íslenskri tungu má rekja til gamals pyntingartækis. Hugmyndina fékk Steve úr kvikmyndinni The Man In The Iron Mask.
Á þessum tíma var pönkstefnan vinsælust, en Harris hlustaði frekar á rokkbönd eins og Deep Purple, Jethro Tull og Judas Priest og hafði mestan áhuga á að spila tónlist á borð við þær sveitir. Það sem Iron Maiden voru að gera í upphafi var alls ekki ólíkt fyrri hljómsveitum Steve’s. Söngvari Smiler var ráðinn sem söngvari og hann lagði til að David Murray(köllum hann bara Dave) yrði ráðinn, en hann var með Dennis í bandinu Warlock. Annar gítarleikari var ráðinn með Dave, hann Bob D’Angelo. Ron Matthews var að lokum ráðinn á trommur. Þar með var fyrsta liðskipan Iron Maiden að veruleika.
En Adam var ekki lengi í paradís. Dave þoldi ekki Dennis né Bob og öfugt og endaði það með því að hann var rekinn úr sveitinni. Þá fór hann til móts við gamlan félaga, Adrian Smith, og stofnuðu þeir hljómsveitina Urchin og gáfu út plötu. En áttu þeir báðir eftir að koma meira við sögu seinna. Í stað Dave’s var ráðinn hljómborðsleikari, Terry Wapran, en ekki entist hann lengi og yfirgaf hljómsveitina brátt. Þá voru þeir aðeins fjórir. Næstu mánuðir voru stormasamir og fengu allir liðsmennirnir að fjúka, fyrir utan Steve að sjálfsögðu. Hann fékk þá til sín söngvarann Paul Di’Anno, trommarann Doug Simpson og að lokum kom Dave Murray aftur, einfaldlega vegna þess að hann var of góður til að láta framhjá sér fara að mati Steve’s.
Fyrstu tónleikar Iron Maiden voru í Ruskin Arms klúbbnum í London, á gamlárskvöld 1977. Þeir héldu síðan áfram að spila á klúbbum við góðar viðtökur. Meðan á að þessum tónleikum stóð sömdu þeir lög, þar á meðal lögin Prowler, Strange World og Iron Maiden. Þeir ákváðu loks að fara í stúdíó til að taka upp eitthvað af þessu nýsamna efni. Þeir fóru í Spacewars stúdíóið í Cambridge og tóku þar upp Prowler, Strange World, Iron Maiden og Invasion. Stúdíóið kostaði 200 pund. Þeir sendu plöturnar til ýmissa útgefanda og að lokum voru þær gefnar út á plötunni The Soundhose Tapes, sem var þó aðeins smáskífa. Hún var gefin út í smáu upplagi og er nánast ómetanlegur sagngripur þann dag í dag. Platan vakti jafnframt mikla athygli og fengu þeir tam. Strax umboðsmann, hann Rod Smallwood, kallaður Smallwallet. Þarna komust þeir einnig í kynni við teiknarann Derek Riggs, sem teiknaði og hannaði goðsagnaveruna Eddie, sem hefur alla tíð verið lukkudýr sveitarinnar og prýtt öll þeirra plötuhulstur.
Smallwood stóð sig nokkuð vel í starfi umboðsmanns og fékk fullt af tónleikum fyrir þá. Hann mælti einnig með því að þeir réðu annan gítarleikara, sem varð Dennis Stratton. Því miður þurfti hinn stórgóði trommari Doug Sampson að hætta vegna slæmra veikinda. En ekki kom síðri maður í hans stað, eða Clive Burr. Metallinn var alltaf að verða sívinsælli á þessum tíma og voru margar metalplötur að seljast vel. Þegar fyrsta lag væntanlegrar plötu kom út sló það í gegn og náði 36. sæti breska vinsældarlistans, en þetta var lagið Running Free. Þeim var boðið að koma fram í sjónvarpi í Top of the Pops þættinum á BBC. Þeir samþykktu það með því skilyrði að þeir fengu að spila ‘live’. Þeir fengu það og urðu þarmeð önnur hljómsveitin til að gera það, en The Who með Pete Townshend í broddi fylkingar gerðu það fyrstir banda árið 1973.
Platan, sem einfaldlega hét Iron Maiden kom út þann 14. apríl 1980. Umslag plötunnar prýddi fyrsta teikning Derek’s Riggs af Eddie. Platan sló í gegn og náði 4. sæti á topplistanum í Bretlandi. Platan innihélt lög á borð við Phanton of the Opera, Killers og Running Free. Flest laganna voru saminn af Steve og Paul. Þetta sama ár komu út tvær smáskífur, þær Sanctuary og Woman in Uniform. Þær vöktu einna helst athygli fyrir umslögin, en á annars sést Eddie myrða Margareth Thatcher með öxi, en á annari situr Margareth fyrir honum með vélbyssu. Dennis Stratton hættu skömmu síðar enda var hann langtum eldri en aðrir í bandinu og small því ekki inn auk þess að hafa annað álit á tónlist en félagar hans. Í stað hans var fyrrnefndur æskuvinur Dave’s ráðinn, Adrian Smith.
Í ágúst sama ár er þeim boðið að hita upp fyrir stórbandið frá Ameríku, KISS, á evróputúr þeirra, og að hita upp fyrir Ufo í Reading. Það gaf Steve tækifæri til að hitta Pete Way, einn af hans helstu áhrifavöldum.
Önnur plata var væntanleg frá strákunum og fengu þeir í þetta skiptið Martin Birch til að pródúsera hana. Birch hafði áður unnið með ekki ómerkari mönnum en Deep Purple, Black Sabbath, Rainbow og Whitesnake. Hann breytti sándinu til hins betra og kom með nýjar áherslur. Þann 2. febrúar kom svo platan út og fékk nafnið Killers. Hún náði 12. sæti breska listans, ekki eins hátt og fyrri platan. Meðal laga voru Genghis Kahn, Killer og Wrathchild. Eftir plötuna fóru þeir í heimstónleikaferðalag og auk þess að spila í Evrópu fóru þeir í fyrsta sinn til Kanada og Japan. Live diskur var gefinn út með upptökum frá Japan, kallaður Maiden Japan. Líklega var nafngiftin undir áhrifum frá Deep Purple og disk þeirra Made in Japan Nú voru Maiden á barmi heimsfrægðar. Þeir spiluðu á 125 tónleikum árið 1981 og þeir hafa alltaf verið þekktir fyrir að vera duglegir að spila á tónleikum um allan heim. Di’Anno lifði algjöru rokk lífi á þessum tíma, reykti, drakk og skemmti sér. En það var farið að hafa áhrif á röddina og var honum sagt að hann mætti ekki drekka neitt sterkara en te til að halda röddinni. Það tókst honum erfiðlega og var hann að lokum rekinn um haustið ’81. Það olli mikilli óvissu um framtíð sveitarinnar. Í staðinn var loks ráðinn Bruce Dickinson, söngvari breska rokkbandsins Samson. En Samson var einnig fyrra band trommarans Clive Burr svo þeir þurftu ekki að leita langt. Reyndar kallaði Bruce sig Bruce Bruce en breytti því svo aftur í Dickinson þegar hann gekk til liðs við Maiden. En það var bara byrjunin á eitthverju stóru…
Ef þið hélduð að 1981 hafi verið gott ár í sögu sveitarinnar þá var 1982 enn betra. Þeir spiluðu á nokkrum tónleikum með Bruce áður en upptökur á 3. plötunni hófust snemma árs 1982. Hún kom svo út í mars sama ár. Platan hét The Number of the Beast og titillagið innihélt spádóminn um Andkrist(The Beast), sem ég læt fylgja hér með:
Woe to you, oh Earth and Sea,
for the Devil sends the beast with wrath,
because he knows the time is short…
Let him who hath understanding reckon the number of the beast
for it is a human number, its number is Six hundred and sixty six.
– Opinberunarbók Jóhannesar 13:18
Auk titillagsins inniheldur platan þekktasta lag sveitarinnar, Run to the Hills sem fjallar um baráttu indjána og kúreka. Fyrri hluti lagsins er frá sjónarhorni indjánanna (“White man came, across the see, he brought us pain, and misery”), en sá seinni frá sjónarhorni kúrekanna. (“Raping the woman and wasting the man, the only good indians are tame”) Síðasta setningin vitnar í málsháttinn “The only good indians are dead indians”
Lagið Children of the Damned er einnig með betri lögum plötunnar. Lagið er byggt á samnefndri mynd frá 1963 og fjallar um 6 krakka sem fæðast hér og þar í heiminum og hafa einhverja ofurkrafta. Þau eru flutt til London og á meðan ákveðið er hvað gera skuli við þau er herinn að nota þau í ýmiss verkefni sem endar með því að þau deyja. Textinn lýsir einmitt dauða eins barnanna:
“Melting his face screaming in pain
Peeling the skin from his eyes
Watch him die according to plan
He’s dust on the ground what did we learn”
Hallowed by Thy Name fjallar um seinustu augnablik í lífi manns sem er við það að deyja. Textinn er frábær og söngurinn mjög kraftmikill. Þessi plata er að mínu mati sú besta sem þeir hafa gefið frá sér.
Þeir fóru á risa tónleikaferðalag eftir Number of the Beast plötuna, Best of the Beast, og spiluðu ma. Í fyrsta sinn í Ástralíu og Nýja Sjálandi og síðan fyrir 35.000 manns á Reading tónleikahátíðinni. Alls voru tónleikarnir um 180. Brátt hætti Clive Burr sem trommari vegna erfiðra samskipta við Steve. Í hans stað kom trommarinn úr sveitinni Trust, Michael McBrain, kallaður Nicko. Virkilega hæfileikaríkur trommari. Hans fyrsta verkefni var næsta plata þeirra, Piece of Mind. 16. maí 1983 kom hún út og náði hún 33. sæti breska vinsældarlistans. Frægustu lög þeirrar plötu eru líklega The Trooper og Flight of Icarus. Á umslaginu er Eddie hlekkjaður á geðveikrahæli. Tónleikaferðalagið eftir Piece of Mind gekk vel og voru alltaf fleiri að mæta og sjóvið að aukast.
Næsta plata fékk nafnið Powerslave og kom hún út 3. september 1984, en hún var fyrsta platan þar sem line-upið breyttist ekki. Á plötuumslaginu var Eddie egypskur Faraó. Á þessum tíma voru Iron Maiden á toppi ferils síns og þessi plata er svo sannarlega merki um það. Lög eins og Aces High, Powerslave og 2 Minutes To Midnight eru algjör klassík. Síðan er þarna lagið Rime of the Ancient Mariner, byggt á samnefndu ljóði eftir Samuel Taylor Coleridge. Lagið skiptist í 7 parta og er rúmar 13 mínútur á lengd.
Næst kom út live platan Live After Death. Hún var tvöföld og fylgdu með textarnir, sem er frekar óvenjulegt á tónleikaplötum. Næsta breiðskífa var Somewhere in Time sem kom út þann 29. júni 1986. Á umslaginu var Eddie í stórborg og með leirbyssu. Platan fékk reyndar þá gagnrýni að formúlan væri þreytt og væri búið að reyna hana áður. Lög á borð við Caught Somewhere in Time og Wasted Years eru meðal betri laga plötunnar. Það leið nokkur tími í næstu plötu, eða 2 ár. Þá kom út Seventh Son of a Seventh Son. Nafnið átti vel við, enda var þetta sjöunda plata þeirra. Platan var alls ekki ólík seinustu plötu og fékk svipaða gagnrýni. Hún kom 11. apríl 1988 og þrátt fyrir gagnrýnina seldist hún vel og náði 1. sæti breska vinsældarlistans. Á umslagi myndarinnar var Eddie að leysast í sundur og var það greinilegt merki um að sveitin væri á sömu braut. Liðsmenn hennar höfðu alls ekki jafngaman af þessu og áður. En á plötunni má helst nefna lagið Can I Play With Madness og titillagið sjálft. Eftir þessa plötu ákváðu liðsmenn sveitarinnar að taka sér ársfrí og koma svo sterkir inn aftur.
Í þessu fríi sendi Bruce frá sér sólóplötuna Tattooed Millionare meðal annars með vini sínum Janick Gers. Adrian stofnaði hljómsveitina ASAP, sem stendur fyrir As Soon As Possible. Að loknu þessu fríi kom hljómsveitin saman til að taka upp nýja plötu, Martin Birch var ráðinn til að stjórna upptökum. Það gekk ekki áfallalaust fyrir sig og að lokum gekk Adrian út. Þá hafði Bruce samband við fyrrnefndan Janick Gers og bað hann um að koma í stað Adrian’s. Hann samþykkti það, enda kunni hann flest Maiden lögin. Platan kom út 1. október 1990. Hún hét No Prayer for the Dying. Hún fékk misgóða dóma, en lögin Holy Smoke og Bring Your Daughter to the Slaughter eru þó ágætis smellir. Platan náði 2. sæti breska listann. Þrátt fyrir það er þetta ein þeirra slakasta plata.
1992 kom svo út platan Fear of the Dark. Hún fékk ekki mjög góða dóma þó hún hafi innihaldið lög á borð við Be Quick or Be Dead og Fear of the Dark, sem er reyndar frábært lag. Lag sem er ávallt spilað á tónleikum. Enn voru Maiden að reyna að ná fram plötu sem minnti á gullaldartímana. Á tónleikaferðalaginu eftir plötuna kom sveitin til Íslands, en miðasalan gekk svo illa að fólki var bara hleypt frítt inn.
Í byrjun ársins 1993 hætti Bruce óvænt í sveitinni. Þeir fengu 5000 uptökur með söngvörum sem höfðu áhuga á að syngja með þeim. Að lokum var valinn maður sem kallaði sig Blaze Bayley. Fyrsta plata hans var X-Factor. Hún kom út 1995. Þetta var 10. plata þeirra og fékk hún slæmar viðtökur og ætla ég ekki að segja mikið um hana. 1996 gáfu þeir út safnplötu og eftir gott frí kom platan Virtual XI út árið 1998. Nafnið vísaði til þess að platan var sú 11. Hún fékk enn verri dóma en X-Factor og að marga mati var stutt í endalok sveitarinnar. Steve Harris og Blaze töluðust ekki við og Blaze ferðaðist í annari rútu á ferðalögum. Brátt var staðfest að Bruce væri kominn aftur, og með Adrian Smith með sér. Lítið var sagt um Blaze, en hann vildi sjálfur meina að þetta hafi verið gert í góðu.
Árið 2000 kom út platan Brave New World, hún fékk góða dóma. Mörg frábær lög prýða plötuna og standa Wicker Man, Dream of Mirrors og Blood Brothers hæst ásamt titillaginu.
Árið 2003 kom svo út Dance of Death platan sem innihélt ma. Wildest Dream og Dance of Death.
Nú eru Iron Maiden að túra og munu ma. spila á klakanum þann 7. júní næstkomandi.
Núverandi Line-up:
Bruce Dickinson
Janick Gers
Dave Murray
Adrian Smith
Steve Harris
Nicko McBrain
Ég copyaði þetta af rr.is