Sagan segir að Euronymous, gítarleikarinn (sem seinna var drepinn af Count Grishnack) hafi alltaf viljað prófa að borða mann og þegar Dead drap sig á hann að hofa tekið hluta úr heilanum á honum, steikt hann og borðað.
Einnig segir sagan að Hellhammer hafi tekið brot úr hauskúpunni hans Dead og gert úr henni hálsfesti.
Þessar sögur gætu mjög vel verið uppspuni frá rótum því að svona sögur eru eitthvað sem er mjög algengt að menn eins og þessir fái um sig. Samt held ég að þetta sé alveg hugsanlegt, sem er líklega ástæðan fyrir því að þetta eru svona langlífar sögur, fólk trúir þessu upp á þá (enda voru þeir alltaf að reyna að vera eins evil og mögulegt væri). Þetta eru samt bæði óstaðfestar sögur svo að það er ekki hægt að segja hvort að þetta sé satt eða bara sögusagnir. Ég hef samt lesið frásagnir úr viðtölum og þannig þar sem fólk heldur því fram að það hafi séð hálsfestina, veit ekki hvað er til í því, gæti bæði verið lygi og hálsfesti úr einhverju öðru en hauskúpu Deads.
Það er allavega gaman að þessum sögum.
Endless Power? This is Perfect! - Bryan Fury