Ég veit ekki um glataðri og verri búð heldur en skifuna!! Þetta er alveg satt hjá þér í sambandi við diskana á 2 fyrir 2200 skífan sýgur náttúrulega. Ég ætlaði að kaupa mér diskinn Wisconsin Death Trip með Static-X um daginn, er búinn að horfa á hann í 2 ár á 2500 kall og hélt kannski að hann hefði lækkað…nei nei hann kostar ennþá 2500 krónur shit, hann er frá 1997 eða 1998 það eru 7-8 ár síðan ætti hann ekki að vera gefins eða eikkað?? Pældu í því ef þú myndir fara til Bandaríkjanna og segja fólki að eitt stykki geisladiskur kostar yfir 30 dollara myndi fá hjartaáfall. Diskar þar kosta eitthvað á bilinu 5-15 dollara, Skífan er ömurleg. Aumingja Japis sem gerði fólki greiða og hafði diskana ódýra en fór þess í stað á hausinn. En allavega gott point hjá þér með Iron Maiden diskana ;)