Ég veit að Twiggy Ramirez fyrrverandi bassaleikari Marlyn Manson samdi Blood Pollution, Sammy Hagar fyrverandi (núverandi?) söngvari Van Halen samdi Stand Up. Eitthvað var Mike Matijevic (Mike Steel eins og hann kallar sig í dag) með puttana í We All Die Young. Önnur lög sömdu minni spámenn.
Hljómsveitin sem tók upp öll þessi lög fyrir myndina var skipuð af (ef ég man rétt):
Söngvari: Mike Matijevic (Mike Steel úr hljómsveitinni Steelheart. Geðveikar pípur á þeim gaur)
Gítarleikarar: Zakk Wylde (Ozzy og Black Label Society. Gítarguð) og Nick Cantanese (Black Label Society)
Bassaleikari: Jeff Pilson að ég held (Dokken, Dio)
Trommari: Jason Bonham (Eins og glöggir lesendur taka kannski eftir að, já, þetta er þetta sonur hins mikla John Bonham trommara Led Zepelin en hann hefur sem lengst verið í The Jason Bonham band)