Ég er búinn að eiga Slither síðan hann kom út en veit samt ekki enn hvað mér á að finnast um hann.
Þótt að EC geri þetta allt saman vel þá finnst mér bara vera nóg af nu-metal böndum svo þetta brjálaða SxE band þurfi ekki að bætast í hópinn.
Ég er búinn að heyra eitthvað af Last Of The Sane og finnst mér það gott mál að Karl er farinn að öskra meira og það er komin meiri keyrsla í þetta.
Ég er ekkert að saka kappana um sellout, og er ekki sammála þeim sem segja að Slither sé lélegur diskur, en ég er hrifnari af þessu gamla og er ekki alveg að fíla þessa Ozzy-rödd í Karl.