Svo má til gamans geta þess að eiginkona Bruce, hún Paddy, átti afmæli þann 30. júlí sl. (hún er fædd annaðhvort 1962 eða 1963). Það kvöld héldu Maiden einmitt tónleika í Madison Square Garden í New York, og ein netvinkona mín (sem dýrkar Maiden) fór að sjá þá. Hún sagði mér að á auglýsingaskiltinu þar sem stóð “Tonight - Iron Maiden - Sold Out” (eða eitthvað svona sem venjulega stendur á svona skiltum á tónleikum) hafi staðið með smærri stöfum: “Happy Birthday Paddy - I love you! Love, Bruce”.
Ég veit ekki með ykkur, en mér finnst þetta agalega sætt af honum. Hann Brúsi er bara rómó undir öllu metalyfirborðinu, he he… Awwwwwww… :D