Fimmtudaginn 31.okt. kl:20:00 í Hinu húsinu - verður sérstakt Hrekkjavöku Rokk/Metal kvöld þar sem tvær ferskustu rokk-hljómsveitirnar í dag traðka sviðið.
Rokkmulningsvélin Isidor keyrir á ný-eighties rokk-straumum fyrri hluta sýningarinnar með fullum krafti.
PhutureFX taka þá við með ferskum rokkmetal beinustu leið frá Bandaríkjunum. Þessi hljómsveit hefur hlotið lof gagnrýnenda neðanjarðarmarkaðarsins í músík á Íslandi - áheyrn er lofi ríkari!
Þeir sem missa af þessu, hreinlega MISSA af þessu!
Athugið 16 ára aldurstakmark, skilríkja krafist við innganginn og allir allsgáðir. Frítt inn.