Extermination of Millions Þessi stutta grein fjallar um Extermination Of Millions, plötu eftir grísku brutal death metal hljómsveitina Inveracity, sem var gefinn út fyrr á árinu. Þetta er með þéttustu death metal plötum sem ég hef nokkurn tímann rennt í gegnum, og fannst mér vel þess virði að fjalla um hér.

Diskurinn var gefinn út þann 30. apríl 2007, í gegnum Unique Leader Records (sem hafa meðal annars gefið út verk eftir Aeon, Spawn of Possession og Decrepit Birth) og er hann annar diskur Inveracity, en hinn heitir Circle of Perversion, sem að mínu mati er ekki nálægt því að vera jafn þéttur og þessi.

Þessi diskur er þungur í gegn, með rosalega “catchy” bútum hér og þar, einkum byrjunariffin í Vision of a Coming Apocalypse og Extermination of Millions, sem eru lög sem standa uppúr á þessum disk að mínu mati.

Tracklisti:
1. Exposing the Semi-humans
2. Vision of a Coming Apocalypse
3. Extermination of Millions
4. Forced Prostitution
5. Shrouded in Solitary
6. Vicious Pretension
7. Behind the Walls of Derangement
8. Slavery
9. The Era of Submission
10. Raped
11. Before the Uncreation

Þessi plata fær hiklaust 5 stjörnur af 5 hjá mér, og ég mæli eindregið með henni fyrir alla.