Wacken Open Air er ein elsta og þekktasta þungarokkshátíð Þýskalands, sem dregur að sér á hverju ári mörg þúsund manns frá öllum heimshornum. Hátíðin, sem haldin er í smábænum Wacken í Norður-Þýskalandi, er þriggja daga löng hátíð og fer fram dagana 2. - 4. ágúst. Spilað er á fimm sviðum, þar af 3 aðalsvið og tvö minni.
Wacken er stórglæsileg hátíð, þar sem aðbúnaður, aðstaða, öryggi og almenn framkvæmd og utanumhald er til fyrirmyndar. Það kom því ekki á óvart að hátíðin var tilnefnd til Live Entertainment Awards verðlaunanna í flokknum Most Outstanding Festival í Þýskalandi í byrjun 2006. Slíkt er sérlega eftirtektarvert í ljósi þess að um 500 tónlistarhátíðir eru haldnar í Þýskalandi á ári hverju, en aðeins þrjár aðrar hátíðar voru tilnefndar ásamt Wacken.
Hópferð á Wacken - Mekka Metalsins
RestingMind Concerts hefur haldið utan um hópferð Íslendinga á þessa hátíð síðustu þrjú árin þar sem farið er frá Kaupmannahöfn með rútu beint á Wacken svæðið. Árið 2004 nýttu 25 metalhausar sér þessa ferð, 2005 var hópurinn kominn upp í 40 manneskjur og 2006 var bætt um betur þegar hópurinn náði 50 manna markinu!
RestingMind ætlar að endurtaka leikinn í sumar, enda hafa náðst samningar við veðurguðina um alveg einstakt veður í ágúst Alveg satt!
Um er að ræða hópferð með rútum frá Kaupmannahöfn og beint á Wacken svæðið. Þátttakendur sjá sjálfir um að koma sér til Danmerkur.
Hátíð með um 80 hljómsveitum
Eftirtaldar hljómsveitir eru staðfestar fyrir festivalið núna í ár enn sem komið er, en ballið er ekki búið enn, því það verða um 80 sveitir á Wacken og síðustu sveitirnar verða líklega ekki staðfestar fyrr en nokkrum vikum fyrir festivalið eins og gengur og gerist með svona festivöl. Þetta er þó að verða nánast komið.
1349
ALL THAT REMAINS
AMORPHIS
ANIMAL ALPHA
BELPHEGOR
BENEDICTUM
BLACK MAJESTY
BLIND GUARDIAN (Loksins! Meistarar þýsks melodic speed/power/prog metal)
BLITZKRIEG
CANNIBAL CORPSE
CHTHONIC (Ein stærsta Black Metal sveit Asíu)
COMMUNIC (Nevermore goes prog - Nýjasta plata þeirra er að gera allt vitlaust)
DESTRUCTION
DIE APOKALYPTISCHEN REITER
DIMENSION ZERO (Hliðarproject Jesper Strömblad úr In Flames!)
DIMMU BORGIR
DIR EN GREY
DISILLUSION
DRONE
ELECTRIC EEL SHOCK
ENSLAVED
FAIR TO MIDLAND
FALCONER
FASTWAY
GRAVE DIGGER
GUTBUCKET
HAGGARD
HATESPHERE (Dönsku Thrash metal kóngarnir mættir aftur. Voru frábærir fyrir 2 árum á Wacken)
HEAVEN SHALL BURN
ICED EARTH
IMMORTAL (Reunion)
IN FLAMES
JBO
KAMPFAR
LACUNA COIL
LETZTE INSTANZ
MAMBO KURT
MENDEED
MENNEN
MOONSORROW (Meistarar víkingametalsins)
MOONSPELL
MUNICIPAL WASTE
NAPALM DEATH
NARZISS
NEAERA
NORTHER
PHARAOH
POSSESSED
RAGE + Lingua Mortis Orchestra (10 ár síðan þeir spiluðu síðast!)
ROSE TATTOO
SACRED REICH
SAHG
SAMAEL
SAXON (Stóðu sig gríðarlega vel 2005)
SCHANDMAUL
SECRETS OF THE MOON
SODOM - A Night To Remember, stórtónleikar á fimmtudagskvöldinu
SONIC SYNDICATE
STORMWARRIOR (Featuring Kai Hansen)
STRATOVARIUS
SUBWAY TO SALLY
SWALLOW THE SUN
THE BLACK DAHLIA MURDER
THE SORROW
THE VISION BLEAK
THERION + Orchestra
TURBONEGRO
TYPE O NEGATIVE
TÝR (Þarf að segja meira? Frændur okkar frá Færeyjum)
UNHEILIG
VADER (Gömlu goðin!)
VITAL REMAINS
VOLBEAT (Elvis Metal!! - skærustu stjörnur Dana í harða rokkinu)
W:O:A FIREFIGHTERS
Aldeilis fínt line-up sem dekkar svo til allar tegundir þungarokksins.
Betrumbætt tónleikasvæði
Wacken er stöðugt að reyna að betrumbæta hátíðina og eitt af því sem búið er að betrumbæta til muna fyrir næstu hátíð er að búið er að aðgreina sviðin betur, þannig að þriðja stærsta sviðið, hið svokallaða Party Stage er búið að flytja yfir á alveg nýtt svæði sem er hinu megin við stóru aðalsviðin tvö, s.s. hægra megin við þau, séð frá tónleikagestum. Verður þetta til mikils bóta þar sem áður fyrr voru ekki nógu góð skil á milli sveita sem spiluðu á black stage (2. stærsta sviðið) og Party Stage, en sveitir á þessum sviðum spila á sama tíma og sambland af tónlistinni frá báðum sviðum var óumflýjanlegt. Auk þess verður W.E.T. Stage (4. stærsta sviðið) stærra og betra.
Ferðatilhögun
Lagt er af stað frá Köben að morgni miðvikudagsins 1. ágúst. Þýðir þettar að fólk verður að vera komið til Köben á þriðjudeginum í síðasta lagi! Brottför frá Wacken er á sunnudeginum, 5. ágúst og áætlaður komutími í Köben er um 20-21 leytið.
Verðið
Boðið er uppá einn sameiginlegan pakka fyrir bæði rútuna til Wacken og miðann inná festivalið. Rútuferðin í Danmörku er skipulögð af Livescenen, og stendur einnig Dönum til boða, þannig að það verða eldhressir Danir með í rútunni til og frá Wacken. Athugið að flugið til Kaupmannahöfn er fyrir utan þennan pakka og á ábyrgð hvers og eins fyrir sig, enda flugframboð þangað mikið og ódýrt fyrir og mismunandi hvað fólk vill vera lengi í Köben.
Innifalið í pakkanum er þetta:
* Miði á Wacken hátíðina.
* Rútuferð frá Köben beint á Wacken svæðið og til baka.
* Grillveisla á miðvikudeginum í tjaldbúðum Íslendinga (fólk kemur með sinn eigin mat á grillið, hægt að kaupa á leiðinni í rútuferðinni).
* Partýtjald (í fyrra voru nokkrir sem lögðu í púkk til að kaupa slíkt tjald, en núna verður þetta innifalið).
* Full Metal Service sem samanstendur m.a. af eftirfarandi:
- Tjaldsvæði og kostnaður vegna rusls.
- Aðgangur að sundsvæði Wacken.
- Engin takmörkun á þeim mat og drykk sem fólk hefur með sér á tjaldsvæðið.
- Eingöngu græn svæði fyrir tjaldsvæðin.
- Wacken festival límmiði.
- Kvikmyndakvöld á miðviku- og fimmtudeginum.
- Full Metal Bag, bakpoki sem verður fullur af goodies… í fyrra innihélt hann m.a. vasaljós, uppblásanlegar sessur, regnstakk og mun fleira.
* CD promo sampler diskur fyrir fyrstu 200 sem panta ferðina (að Dönunum meðtöldum).
Úr partýtjaldinu frá hátíðinni 2006
http://svakanaggar.com/wp-content/myndir/WackenOpenAir2006/normal_100_3915.JPG
Verðið sem þetta kostar allt saman er 1750 danskar krónur (DKK). Það er um 20.000 krónur skv. gengi dagsins í dag (17. maí).
Það verður að viðurkennast að þetta er eitthvað dýrara en áður, en það kemur til m.a. vegna þess að miðaverðið á hátíðina hefur hækkað, þar sem að gjald fyrir tjaldsvæði (Hið svokallaða Full Metal Service) hefur verið fellt inn í miðaverðið. Í fyrra, þegar gjaldið var sett á, urðu gestir að borga það þegar þeir mættu á staðinn og mynduðust miklar biðraðir við inngangana, sérstaklega slæmt þegar fólk var að mæta klifjað af farangri. Vegna mikillar aukningar á gestum á síðustu árum, með auknu rusli og álagi á hátíðarsvæðið, var nauðsynlegt að að rukka inn þetta aukagjald af gestum í fyrra. Núna er þetta s.s. inní miðaverðinu og ekkert vesen. Auk þessa hefur kostnaður vegna rútanna aukist.
Deadline fyrir borgun er einum mánuði eftir að staðfesting á pöntun hefur verið send frá mér!
Nánari upplýsingar og skráning
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Þorsteini Kolbeinssyni.
MSN: restingmind “at” msn.com
Email: thorsteinn “at” restingmind.com (nota það frekar en msn meilinn)
Sími: 557-5599 og 823-4830
Ef menn vilja skrá sig, þá senda menn email á mig með eftirfarandi upplýsingum:
Nafn
Heimilisfang, póstnr og staður
Kennitala
Heimasími og GSM
Email og
MSN login (ef annað en email)
Og ég svara um hæl með upplýsingum um hvernig er hægt að borga.
Ætli það sé nokkur spurning hvort að þessir ætli aftur á Wacken??
http://svakanaggar.com/wp-content/myndir/WackenOpenAir2006/normal_100_3957.JPG
Þorsteinn Kolbeinsson
RestingMind Concerts
http://www.restingmind.com
Resting Mind concerts