úff hélt að fólk væri komin yfir þetta. Fjandskotans “séð og heyrt” sýn sem að þið eruð með á kristni, þið ættuð að skammast ykkar. Dæmið trúabrögð útfrá túlkun og gerðum nokkra heimskra manna. Ef ég væri útlendingur og færi á djammið á íslandi og dæmdi alla íslendinga útfrá þessum 10 - 20 fæðingarfíblum sem að maður sér þar, þá fengu íslendingar yfir heild sína ekki fallega frásögn þegar ég kæmi heim er það?
Það er ekki nóg að horfa á loddara eins og Benni hinn og fletta upp gömlum nornabrennum og dæma alla útfrá því. Grimmdin í manninum hefur alltaf verið fyrir og eftir kristni.
Það er létt fyrir söguna að benda á hina slæmu hluti fortíðarinnar og kenna kristni um. En sagan man ekki eftir einstaklingum. Einstaklingar sem eru mun fleiri en nokkurn tíman fylgjendur spænsku klerkastjórnarinnar eða allt þetta vitfirrta fólk.
Sagan á ekki eftir að muna eftir mér, sem fékk mun meiri balance á líf mitt og líður mun betur, eftir að ég fór að trúa. Sagan á ekki eftir að muna eftir félaga mínum sem er að komast yfir eiturlyfjafíkn með hjálp kristninar. Eða fólk sem má minna mega sín á íslandi og annarstaðar, sem sækir andlega, jafnvel fjárhagslega hjálp í krikjuna.
Nei, Sagan man eftir blóðugum krossferðum, nornabrennslum og ég veit ekki hvað og hvað. Kristni hefur hjálpað mér að komast yfir mörg erfið tímabil í mínu lífi, þótt ég sé nú ekkert ofboðslega trúaður, en þessi hátíð þykir mér móðgandi á mig og fleiri sem eiga kristninni mikið að þakka.
En auðvitað má fólk vera trúlaust, eða heiðið eða hvað sem er. Allir hafa sínar skoðanir og ég afsaka virkilega, ef einhverjum finnst ég hafa gert lítið úr sínum skoðunum. Auðvitað má haldna heiðnar hátíðir og allt sem með þeim fylgir. ég ætla bara að biðja þá sem hafa einhver áhrif inn á þessari hátíð að þrýsta á það að nafninu verði breytt yfir í sólstafshátíð, eða hvað sem þykir viðeygandi. En enn og aftur, þá þykir mér virkilega flott fyrir þá sem ekki eru kristnir að það sé líka hátíð fyrir þá, þannig að þeir geti sloppið undan öllu jólastressinu í smá stund og hver veit nema að ég komi og kíki á Dark Harvest og fleiri. :)
Er ekki að reyna að vera með leiðindi og biðst afsökunar ef einhverjum finnst það. Bið bara að fólk taki þetta til umhugsunar :)
Crestfallen