Ég gæti ekki verið meira sammála þér !
Og fyrir þá sem eru ennþá að hata Metallica út af napster málinu, (sumir hata bara metallica, en ekki hin hundruðin af hljómsveitum sem voru með þeim í þessu) þá get ég sagt ykkur eitt. Meðlimir Metallica hafa byggt þessa hljómsveit frá grunni alveg sjálfir. Og þeir hafa lagt harðar að sér við það en meira en 97% allra annara hljómsveita sem nokkurn tíma hafa verið uppi. Þeir hafa aldrei notað útgáfufyirtæki sitt sem banka fyrir því sem þeir hafa gert og gefið út. Þeir hafa fjármagnað hvern einasta disk, hvert einasta myndband, og hvað sem er sem þeir hafa gefið út sjálfir, beint úr þeirra eigin vasa. Og það er meira heldur en langflestar aðrar hljómsveitir hafa gert. No one else has their own music to protect !
Jæja. Í langflestum tilvikum, þá er bara verið að stela af útgáfufyrirtækjunum og öðru slíku, sem fá 85% af dollaranum. En þarna var verið að stela af þeim sjálfum. Er það svona rosalega skrýtið að þeir hafi verið svona mikið á móti þessu, ásamt öðrum hljómsveitum? Það þykir mér ekki.