1/2 pk. ger
1 dl. heitt vatn
1/2 dl. mjólk
4 dl. hveiti
1/4 tsk. salt
1 tsk. sykur
3 msk. hveitiklíð
50g. smjörlíki
1 askja smurostur að eigin vali
1 bréf skinka
Þurrefnum blandað saman. Lint smjörlíki mulið saman við. Mjólk og vatni blandað saman og sett út í. Hnoðað og látið hefast í 30 mín. Flatt út í tvo kringlótta pitsubotna. Hverjum skipt í átta horn. Skinkan skorin í bita og hrært saman við ostinn. Ein skeið af ostablöndu sett á hvert horn og því rúllað upp (byrjað á breiða endanum). Bakað við 200°- 225°c þar til hornin eru orðin falleg á litinn.
Sá sem margt veit talar fátt