200 gr suðusúkkulaði
200 gr smjör
4 egg
2 dl sykur
2 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
Bræðið saman súkkulaði og smjör við vægan hita. Kælið að mestu.
Þeytið mjög vel saman egg og sykur og blandið súkkulaðibráðinni varlega saman við með sleikju.
Sigtið saman hveiti og lyftidufti og blandið því einnig varlega saman við hræruna með sleif. Setjið í stórt vel smurt hringform, tertuform.
Bakið í 200 gráðu heitum ofni í 30-35 mín.
Kakan verður fremur þétt og blaut í sér.
Kælið og hvolfið á fat, sigtið flórsykur yfir og raðið hálfum jarðarberjum allan hringinn á brún kökunnar.
Borið fram með þeyttum rjóma.