Mig langar að fá mér beyglu.
Spurning með álegg. Með hverju mælið þið?
Spurning með álegg. Með hverju mælið þið?
Hvernig beygla? Ef hún er með kanil og rúsínum þá klárlega smjör og ost, langbest af öllum beyglusamsetningum <3
Ef þig langar í eitthvað matarmeira
-bakaðar baunir - ost - inní ofn
-skinku - ananas - ost - inní ofn
-camebert, salat, hráskinku og ólifuolíu
-ólifuolíu, pínupínupínu pizzasósu, sesamfræ, oregano, basiliku, salt og pipar, (eða krydd að eigin vali, þetta er það sem ég fæ mér bara) skinku og ost og hita í ofni. Best samt ef þú átt kjúklingaafganga eða eitthvað til að tylla á í staðinn fyrir skinku
-velta henni upp úr mjólk og svo kanelsykri, steikja upp úr smjöri ef þú ert í nammistuði