Þú getur bæði notað spelt og svo sprouted grain eða spírað korn sem fæst í heilsuhúsinu og yggdrasil, það er mjög hollt korn.
Ef þú ert í átaki áttu samt ekki að forðast fitu, maður grennist ekki ef maður borðar ekki fitu. Þú skalt frekar forðast ónáttúrulegar fitur eins og t.d. smjörlíki, en smjör og ólífuolíur eru hollar.
Mæli með því að þú skoðir þetta :
http://www.thedietsolutionprogram.com/Kannski ekki eitthvað til að fara akkúrat eftir heldur segir manni kannski frekar hvað er hollt og hvað er óhollt. Þarna eru líka margar uppskriftir.
Það er mjög sniðugt að hafa 6 daga í viku þar sem þú borðar bara hollt, borðar 5-6 sinnum á dag, og passar þig að borða aldrei of mikið. Svo einn dag í viku þá gleymir þú öllu um matarræðið þitt og borðar það sem þú vilt. Ef þú skerð niður kaloríur í 6 daga og borðar svo mikið í 1 dag kemur þú samt út í mínus.
Og svo bara að muna að hreyfa þig, svona 3-4 sinnum í viku, þar sem þú reynir að taka svakalega mikið á í u.þ.b. hálftíma, en ekki missa þig í því að fara tvisvar á dag í klukkutíma í senn.
Gangi þér vel :D