Vonandi dugar þetta :)
Spelti- og hafrabrauð
3 dl speltimjöl
3 dl haframjöl
1 dl kúmen
1 dl önnur fræ; sólblóma, hörfræ eða graskersfræ, eða blanda af þeim öllum
4 tsk lyftiduft
4-5 dl létt ab-mjólk
1 dl hunang
Þurrefnum blandað saman. Ab-mjólkin saman við og hnoðað vel. Betra að hafa deigið fremur blautt. Setja bökunarpappír og móta hleif.
Bakað í 40 til 45 mín við 180 í blástursofni. Gott að dreifa fræjum yfir áður en bakað er.