Það er rétt sem nefnt hefur verið hér að það er einfaldur whiský, púðursykur (jafnvel meira en ein teskeið), kaffi og rjómi. Sumir nota líka kandísstangir í staðinn fyrir púðursykurinn …
En það er ekki sama hvernig whiský er notað!!!
Tullamore Dew og Millar´s þykja mér koma best út. Ef þú hefur lent á góðu irish coffee og vilt komast sem næst því þá er bara um að gera að hafa samband við staðinn og einfaldlega spyrja hvaða tegund þeir nota.
Annars verð ég nú líka að segja að það jafnast ekkert á við irish coffee með nýmöluðum kaffibaunum, ekkert eitthvað lofttæmt 2 ára Merrild kaffi takk!