Mjög góður hversdagsréttur. Margar útgáfur eru til af buffi en fyrir þá sem sífellt leita að nýjungum mælum við með að þeir prófi Lindström!
Hagnýtar upplýsingar:
Næringargildi miðað við 100 g
g kJ kkal %
Orka 522 125 100
Fita 9 333 81 65
Kolvetni 3 44 10 8
Prótein 9 145 34 27
Trefjar 1
Undirbúningur 5 mín
Matreiðsla 30 mín
Einfaldleiki Meðal
Hráefni: Fyrir hve marga: 4
750 g nautahakk
200 g soðnar kartöflur, marðar
2 stk egg
2 msk kapers
2 msk olía
1½ dl gott soð eða mjólk
1½ dl rauðrófur, saxaðar
½ stk laukur
pipar
salt
Sósa
4 dl kjötsoð
1 msk olía
½ stk laukur
¼ tsk rósmarín, McCormick
maísmjöl, fínt
pipar
salt
Undirbúningur
Byrjið á því að saxa laukinn smátt og saxa síðan kapersið og rauðrófurnar.
Matreiðsla
Blandið saman nautahakki, vökva, grænmeti, eggjum og kryddi. Mótið buff úr deiginu og steikið þau í olíu á pönnu.
Sósa
Mýkið laukinn í olíunni. Bætið kjötsoðinu við og látið sósuna sjóða í 3 mínútur. Kryddið með rósmaríni, salti og pipar. Þykkið sósuna með maísmjöli og hrærið saman við kalt vatn, en hafið hana fremur þunna.
Framreiðsla
Buff að hætti Lindströms er mjög góður hversdagsréttur.
<br><br>******************************
Kíkjið á <a href="http://kasmir.hugi.is/Engel/">síðuna mína</a> og takið þátt í SLÚÐRINU.
Uppfærð = 9. Septembe