Skemmtilegur mexíkanskur forréttur og einstaklega góður. Quesadillas er vinsæll forréttur á mexíkönskum veitingastöðum. Það er tilvalið að byrja mexíkönsku stemmninguna á þessum rétti!
Hagnýtar upplýsingar:
Næringargildi miðað við 100 g
g kJ kkal %
Orka 1048 250 100
Fita 12 436 106 42
Kolvetni 25 427 100 40
Prótein 11 185 44 17
Trefjar 0
Undirbúningur 10 mín
Matreiðsla 15 mín
Einfaldleiki Meðal
Hráefni: Fyrir hve marga: 2
800 g frosin, bein- og skinnlaus kjúklingalæri
170 g Uncle Ben´s Country Inn Spanish Rice hrísgrjón
6 stk tortillas kökur
4½ dl vatn
3¼ dl rifinn cheddar ostur
1¾ dl salsasósa
¾ dl sýrður rjómi
½ dl sneiddar ólífur
Matreiðsla
Hitið ofninn í 220°C. Látið volgt vatn renna á kjúklingalærin í 1-2 mín. Skerið kjúklingalærin í 2,5 sm bita. Setjið á stóra pönnu vatn, hrísgrjón og kryddblöndu; bætið kjúklingnum út í og látið sjóða. Setjið lok yfir, minnkið hitann og látið malla í 10 mínútur. Úðið með pan-spray á báðar hliðar á tortillas kökunum og látið helminginn af þeim á örk af bökunarpappír. Setjið á hverja tortilla köku 1/3 af hrísgrjónablöndunni, ólífum og 1/3 af ostinum. Setjið tortillas köku ofan á og dreifið afganginum af ostinum yfir. Bakið í 5-7 mín. eða þar til tortillas kökurnar eru orðnar ljósbrúnar. Skerið í sneiðar og setjið salsasósu ofan á.
Framreiðsla
Berið fram með salsa sósu og sýrðum rjóma
<br><br>******************************
Kíkjið á <a href="http://kasmir.hugi.is/Engel/">síðuna mína</a> og takið þátt í SLÚÐRINU.
Uppfærð = 9. Septembe